Ayurveda svæðameðferð
eftir Sharon Stathis
Þýtt og endursagt úr dönsku af Hallfríði M. Pálsdóttur.
(Tekið af Touchpoint.dk)
12.
– 13. maí næstkomandi kemur Sharon Stathis frá Ástralíu til að kenna
okkur ayurveda svæðameðferð. Þetta er einstakt tækifæri sem enginn
svæðanuddari ætti að láta fram hjá sér fara.
Sharon hefur kynnt sér hina indvesku alþýðulækningaraðferð ayurveda
og þróað meðferðarform sem hún kallar ayurveda svæðameðferð. Þar
fléttar hún ævafornum indverskum ayurveda hefðum inn í nútíma
svæðameðferð.
Sem
tákn fyrir ayurveda svæðameðferð hefur Sharon Stathis valið
hindúaguðinn Ganesha, sem er guð visku og kennslu. Ganesha er einnig
kallaður; sá sem fjarlægir hindranir.
Hvad er Ayurveda?
Ayurveda er indversk alþýðulækningaraðferð sem hefur verið stunduð í
u.þ.b. 4.000 ár.
Ayur
þýðir
líf og veda þýðir viska eða þekking, þannig að ayurveda þýðir
þekking á lífinu eða lífsþekking. Hún er nátengd indverskri heimspeki
og lífsskoðunum og myndar víðtækt kerfi sem af virðingu nýtir
heilunarmátt náttúrunnar. Ayurveda leggur áherslu á þýðingu þess að
halda ónæmiskerfinu og sjálfsheilandi kröftum í góðu standi með
réttum lifnaðarháttum.
Bæði í fyrirbyggjandi tilgangi og í meðhöndlun koma mismunandi
nuddaðferðir og líkamsmeðhöndlanir við sögu, sem og notkun
ilmkjarnaolía og jurtalyfja.
Padabhyanga
Fótanudd - kallað „padabhyanga” – skipar sérstakan sess í ayurveda
hefðinni.
Það
er
bæði notað sem dagleg athöfn, til að fyrirbyggja ójafnvægi og
sjúkdóma með því að viðhalda jafnvægishneigð (homeostasis) líkamans,
og sem liður í meðhöndlun sjúkdóma.
Í
gömlu indversku handriti stendur: Eins og slanga heldur sig frá
örnum, halda sjúkdómar sig frá þeim sem nudda fætur sína frá hnjám að
tám fyrir svefn!
Framkvæmd padabhyanga getur samanstaðið af þremur höfuðþáttum:
Marmapunktameðferð, handaaðferðum og ”Kasa-kúlu” meðhöndlun.
Kasa-kúlan
Málmar eru oft notaðir í ayurveda meðhöndlun meðal annars með hinni
svokölluðu Kasa-skál eða Kasa-kúlu. Hin upprunalega Kasa-skál er gerð
úr kopar og tini, sem leiðir hita mjög vel. Hið rúnnaða yfirborð
hitnar og smyrst í olíunni og notast sem nuddáhald. Kúlan hentar vel
til venjulegs fótanudds með hringlaga strokum en hana er einnig gott
að nota á ákveðin hátt á marampunktana.
Auk þess að vera mjög þægileg fyrir kúnnann, hjálpar Kasa-kúlan til
við að draga úrgangsefni í gegnum húðina og jafnvægisstilla
hitastigið í fætinum og líkamanum.
Sharon Stathis sýnir Kasa-kúlutækni á fótum.
Marmapunktar
Í ayurveda svæðanuddi er lögð mikil áhersla á lífsorkuna (prana),
þ.e. hefðbundnar orkubrautir og fínt net minni orkubrauta sem nefnast
nadis sem prana flæðir um og nærir líkama og sál. Í
ayurvedískri heimspeki er heilbrigði háð óheftu flæði lífsorkunnar um
orkubrautirnar og orkustöðvarnar. Það eru fjórtán “æðri” nadis sem
allar eiga upptök sín í mænurótarstöðinni við enda hryggsúlunnar og
deila orkunni út í hinar orkustöðvarnar. Meðfram þessum orkubrautum
eru minni orkustöðvar, alls 107 talsins, og nefnast þær marmapunktar.
Marma þýðir viðkvæmt eða næmt svæði.
Tvö
dæmi um marmapunkta
Gulpha
Marma
eru á fótunum. Þeir liggja eftir því sem við á, innan á og utan á
hælnum rétt undir ökklaliðnum.
Frá sjónarhorni svæðameðferðar svara þessi svæði til kynfæranna,
mjaðmabeinanna, mjaðmaliðs og neðri hluta hryggsúlunnar.
í ayurvedafræðunum er álitið að Gulpha Marma hafi áhrif á
æxlunargetuna. Punktarnir hafa áhrif á stoðkerfið með því að efla
beinmyndun og bæta virkni liðanna, sérstaklega hreyfingar fótarins.
Að auki hjálpar Gulpha Marma við að minnka umfram fitubirgðir
líkamans.

Kshipra
Marma
eru á höndum og fótum bæði að ofan og neðan. Punktarnir eru
staðsettir yst í fitinni á milli fyrstu og annarrar táar (fingra).
Fitin á milli hinna fingranna og tánna hefur stuðningsáhrif.
Í klassískri svæðameðferð svara þessi svæði til neðri hluta
hnakka/hálss og efstahluta brjóstkassa. Þetta er mikilvægt
sogæðasvæði, því hér rennur sogæðavökvinn í bláæðarnar.
Kshipra Marma stjórnar sogæða- og öndunarkerfunum og hefur mikilvæg
áhrif á virkni hjartans.

Þessi
tvö dæmi sýna á áhrifaríkan hátt hvernig mörg þúsund ára hefðir koma
heim og saman við nútíma skilning á svæðameðferð.
Marmapunkta meðhöndlunartækni:
Aðferðin sem notuð er við meðhöndlun marmapunktanna eru
núningshreyfingar, svæðið er nuddað eða strokið, með hröðum hringlaga
hreyfingum. Nuddið er alltaf milt en er gert rösklega, þannig að
blóðrás og orkuflæði aukist á svæðinu.
Það er
hagur af því að nota krem eða olíu á punktinn. Ilmkjarnaolíur sem
hæfa ástandi kúnnans er hægt að nota í meðhöndluninni.
-
Noti meðhöndlarinn hægri höndina nuddar hann réttsælis, en noti
hann vinstri höndina nuddar hann rangsælis.
-
Hver punktur er meðhöndlaður í u.þ.b. 30 sekúntur í byrjun og
síðan í lengri og lengri tíma í hvert skipti, þangað til hámarkinu,
sem er 3 mínútur á hvern punkt, er náð.
-
Sömu punktar meðhöndlast á báðum fótum.
Hvernig er hægt að blanda saman ayurveda og svæðameðferð?
Um er að ræða tveggja daga námskeið þar sem lögð er áhersla á
hagnýtar æfingar.
Þar kennir Sharon Statis nýja aðferð til að flétta inn mismunandi
nuddtækni á velþekktum fótasvæðum. Þetta er frábær tækni og um leið
heillandi aðferð og áhrifarík opnun fyrir klassíska svæðanuddmeðferð.
Aðferðina er einfalt að læra og þægilegt að flétta hana inn í daglega
rútínu á stofunni.
Á námskeiðinu er kynnt stutt ágrip af sögu og heimspeki ayurveda,
ýmis nuddtækni, notkun á Kasa-kúlum, notkun mismunandi ayurveda
ilmkjarnaolía, ásamt staðsetningu og meðhöndlun á mikilvægum
orkupunktum, svokölluðum marma–punktum.
„Á komandi árum trúi ég að notkun marmapunkta verði útbreiddari og
þróaðri á Vesturlöndum, sérstaklega í þeim meðhöndlunarformum sem
hafa orkuvinnu eins og svæðameðferð. Sem reyndir svæðanuddarar getum
við aukið áhrif vinnu okkar með því að flétta inn þessa gömlu
padabhyangatækni. Með því að sameina þessi tvö meðferðarform
margfaldast áhrif beggja,“ segir Sharon Statis.
Sharon
Stathis
Sharon Stathis er menntuð hjúkrunarkona en hefur unnið sem
svæðanuddari í mörg ár. Hún er ein af fyrstu svæðanuddurunum í
Ástralíu. Sharon stofnaði fyrsta skólann með viðurkennda námskrá og
er skólinn, sem er í Brisbane, nú sá stærsti í Ástralíu. Hún er þekkt
og velmetin sem kennari í Ástralíu og fleiri löndum. Ayurveda
svæðanudd hefur hún þróað í samvinnu við hinn þekkta indverska
ayurvedalækni Dr. Avinash Lele í Pune á Indlandi. Sharon heimsækir
Indland reglulega þar sem hún vinnur að þróun ayurveda svæðanudds í
samvinnu við Dr. Lele.
Heimasíðan hennar er :
www.ayurvedicreflexology.com
Látið þetta einstaka tækifæri ekki fram hjá ykkur fara. Nánari
upplýsingar veita Guðbjörg Hafsteinsdóttir, í síma 821 2627, og
Hallfríður Pálsdóttir, í síma 869 4046, og taka þær jafnframt niður
skráningar. Farið verður fram á staðfestingargjald.
Viðtal við Sharon Stathis fylgir hér á eftir.
Ayurveda svæðanudd – gamalt eða nýtt meðferðarform?
Á
nútíma svæðameðferð rætur sínar að rekja til hinna þúsunda ára gömlu
ayurvedísku hefða?
Viðtal
við Sharon Statis eftir Dorte Krogsgaard og Peter Lund Frandsen,
Hallfríður M Pálsdóttir þýddi með leyfi höfunda.
Dorte og
Peter hittu Sharon á ferðum sínum til Ástralíu, þar sem viðtalið var
tekið, og buðu henni í framhaldi af því að kenna aðferð sína í
Danmörku. Sharon sýndi áhuga á því að koma til Íslands og mun hún
koma um miðjan maí og halda þetta eina námskeið hér. Dorte er hér með
Sharon Stathis á myndinni.
Hvernig
þróaðir þú þetta einstaka form svæðameðferðar?
Ég
gekk út frá hinni klassísku svæðameðferð Ingham sem ég hef stundað í
mörg ár og kennt í skólanum mínum.
Fyrir
mörgum árum rakst ég af tilviljun á teikningar í blaði, sem sýndu
fætur þar sem örsmáir punktar voru merktir inn sem kallast
marmapunktar. Fyrir utan að segja að þessir punktar væru mikilvægar
orkustöðvar voru engar aðrar upplýsingar um þá í blaðinu. Forvitni
mín var vakin en vegna anna sem kennari og skólastjóri var það ekki
fyrr en árið 2001 sem ég hafði loksins tíma til þess að leita svara.
Þið þekkið ef til vill orðtakið; þegar tíminn er kominn kemur
kennarinn til þín. Það á við um mig.
Ferðalagið inn í veröld ayurvedískar aðferðarfræði hefur verið
spennandi, stundum svekkjandi en einnig frábærlega gefandi.
Ayurveda hitti mig í hjartastað. Hún hefur hjálpað mér að skilja mörg
sjónarhorn svæðameðferðar sem ég hafði aldrei áttað mig á. Að læra
hinar ayurvedísku handa- og fótaaðferðir var eins og að koma heim,
þetta var mér svo eðlilegt.
Í leit
minni að vitneskju um ayurveda hef ég heimsótt Indland nokkrum sinnum
og verið svo heppin að eiga mjög gott samstarf við marga
viðurkenndustu ayurveda lækna landsins. Náminu lýkur aldrei og ég
hlakka alltaf til að læra nýja hluti.
Meðal
grundvallarfrumkraftanna í ayurveda er dosha, getur þú sagt frá þeim
í stuttu máli?
Dosha
(líkamsorkugerð) eru mikilvægur hluti í skilningi á ayurveda og mjög
víðfeðm fræðikenning. Ég skal stytta þetta eins og hægt er.
Orðið dosha þýðir það sem breytir sér og táknar hin þrjú grundvallar
lífsorkulögmál í líkamanum. Þær eru kallaðar vata, pitta og kapha.
Jafnvægið á milli þessara þriggja líkamsorkugerða speglar líkamlegt,
andlegt og tilfinningalegt ástand manneskju.
Venjulega er ein eða tvær dosha ríkjandi á ákveðnum tímapunkti og
tjáir hver um sig lifandi lífsorku með ákveðnum karaktereinkennum:
Í
ayurveda er ójafnvægi í vata talið ein mikilvægasta sjúkdómsorsökin.
Umframmagn af vata birtist m.a. í tilhneigingu til að fá harðlífi og
hægðastíflur með endurupptöku úrgangsefna í ristilslímhimnu.
|
Dosha |
Mikilvægasta virkni |
Mikilvægasta Staðsetning |
|
Vata |
Ber ábyrgð á hreyfingum sem eiga sér stað í líkamanum |
Ristillinn |
|
Pitta |
Sér um hitaþróun |
Smágirni og magi |
|
Kapha |
Ber ábyrgð á smurningu og samhengi. |
Lungu (og öndunarvegur) |
Er til
aðferð til að meðhöndla vata á fætinum?
Hver hinna þriggja dosha skiptist í fimm undir-dosha sem hafa áhrif á
ákveðna líkamsstarfsemi. Dr Randolph Stone sem þróaði
pólunarmeðferðina
hefur tengt hinar fimm
Pólun
er heildræn heilbrigðismeðferð, byggð á skilningi á orkukerfi
manneskjunnar og nútíma þekkingu á orku.Kenningar og aðferðir
pólunarmeðferðar voru þróaðar af bandaríkjamanninum Dr. Randolph
Stone f.1890 d.1981. Dr. Stone skilgreindi heilbrigði sem það
ástand er gerir sálinni kleift að tjá sig hindrunarlaust gegnum
huga, tilfinningu og líkama fólks. Jafnvægi á þessu þríþætta
orkustreymi er grundvöllur fyrir heilbrigði og vellíðan en
hindrun á streymi kemur fram sem líkamlegt eða andlegt ójafnvægi
eða sjúkdómur.
Í pólunarmeðferð er því leitast við að koma á hindrunarlausu
orkuflæði um líkamann og losa um orkustíflur. Það er gert með
mismunandi djúpri snertingu á þeim orkurásum og svæðum líkamans
sem Dr. Stone skilgreindi og kortlagði, samkvæmt kenningum sínum.
Meðferðartími miðast yfirleitt við 45 til 60 mín. Meðferðin er
unnin á bekk. Sá er meðferð þiggur þarf ekki að afklæðast en vera
í þægilegum, helst bómullarfatnaði næst sér.
Heimild: Ljósheimar.is
vata
undir-dosha við hin fimm lóðréttu svæði á hvorum fæti. Nudd eftir
þessum línum hjálpar til við að koma vata í jafnvægi og örva allt
orkuflæðið.
Ein
aðferðanna í ayurvedasvæðameðferð gengur út á að vinna með hin stöku
lóðréttu svæði frá hæl að tá til að efla jafnvægi vata.
Hvað
er mikilvægast í ayurveda svæðameðferð?
Hvernig blandar maður saman hefðbundnu ayurveda svæðanuddi og
klassískri Ingham aðferð?
Að
örva orkustreymið er í fyrirrúmi í hinu indverska fótanuddi sem
kallast padabhyanga. Að byrja meðhöndlum með padabhyanga er sérdeilis
áhrifaríkur undirbúningur fyrir klassískt svæðanudd. Viðskiptavinir
eru yfirleitt stressaðri nú en í upphafi svæðameðferðarinnar á
Vesturlöndum á sjöunda áratugnum. Þess vegna er mikilvægt að upphaf
meðferðarinnar sé áhrifaríkt og þægilegt. Þegar fæturnir eru heitir
og kúnninn finnur líf í fótunum getur maður meðhöndlað einn eða
fleiri marmapunkta sem manni þykja mikilvægir, áður en hið klassíska
svæðanudd hefst. Maður getur einnig endað á marmapunktunum.
Hvernig
er nuddaðferðin í padabhyanga?
Handaaðferðirnar sem notaðar eru í padabhyanga eru fyrst og fremst
núningshreyfingar, eins og strokur og nudd. Það er unnið rösklega
með hröðum takti til að örva hina staðbundnu blóð- og orkurás.
Sérstaklega er hugað að liðum og beinaútvexti sem eru sérstök
orkusvæði.
Lífsorkan (prana) streymir í átt að tánum og orkustraumur þessi
styrkist við að strjúka fótinn frá hæl að tám.
Hvaða
olíu notar þú í nuddinu?
Olían
sem algengast er að nota í ayurveda nuddi, þar á meðal padabhyanga er
sesamolía. Hún er gagnleg öllum þrem doshunum, er rík af
fituleysanlegum vítamínum, inniheldur mörg steinefni og heldur sér
vel. Hún er kröftugt þráavarnarefni (andoxandi) og góð grunnolía sem
hægt er að blanda í jurtum og öðrum efnum.
Ég
vinn mikið með ilmkjarnaolíur á marmapunktana. Það er eitt
áhrifaríkasta form ilmolíunudds og samtímis mjög kraftmikil
marmapunktameðferð. Olíurnar eru notaðar beint á punktana, án almenns
nudds á aðliggjandi svæði. Ég er ennþá undrandi yfir kraftinum sem
liggur í því að blanda saman ayurveda og nútíma svæðameðferð og
hlakka til að kenna fleirum þessa aðferð mína.
Mynd: Vinnuaðstaða Sharon Stathis
|